Leiðsögunám undirbýr nemendur undir það að fylgja ferðamönnum um Reykjanesið. Námið er samtals 22 einingar og skiptist í tvennt kjarna og svæðisbundið leiðsögunám. Nám í kjarna er 17 einingar. Nám í svæðisþekkingu eru 5 einingar og felur í sér sérhæfingu á Reykjanesi.
Leiðsögunámið er kennt á haustönn 2016 og vorönn 2017.
Námið hefst 3. október og lýkur í maí 2017.
Kennt verður 1 - 2 kvöld í viku og nokkra laugardaga verða vettvangs- og æfingarferðir.
Námið er 22 einingar og skiptist í kjarnagreinar (17 einingar) og svæðalýsingar (5 einingar).
Námið er kennt í samstarfi við Leiðsöguskóla Íslands (Menntaskólann í Kópavogi) og jafngildir fyrri önninni í leiðsögunámi MK auk fimm eininga í sérhæfingu á Reykjanesinu.
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst.
Inntökuskilyrði
Umsækjendur þurfa að vera orðnir 21 árs við upphaf námsins. Þeir þurfa að hafa stúdentspróf eða sambærilegt nám/reynslu að baki ásamt því að hafa mjög gott vald á einu erlendu tungumáli, auk íslensku.
Nemendur þurfa að standast munnlegt inntökupróf í tungumáli að eigin vali áður en skólavist er heimiluð. Einnig verður mögulegt að taka námið eingöngu á íslensku.
Markmið að námsmaður:
• öðlist almenna þekkingu við leiðsögn með ferðamenn
• öðlist sérmenntun á sviði leiðsagnar um Reykjanesið
• hafi færni og hæfni til þess að standast kröfur ferðaþjónustunnar hverju sinni um áreiðanleika og fagleg vinnubrögð
Námsgreinar
• Atvinnuvegir ATV101
• Bókmenntir og listir BOL102
• Dýralíf DÝR101
• Ferðaþjónusta FEÞ101
• Gróður - náttúruvernd GRN101
• Íslenska samfélagið ÍSA101
• Jarðfræði JAR102
• Leiðsögutækni - samskipti JAR102
• Íslandssaga SAG101
• Skyndihjálp SKY101
• Tungumálanotkun I TMN102
• Vettvangsnám VEV102
• Svæðalýsingar SVÆ135
Námsmat
• Námsmat byggir á skriflegum og/eða munnlegum verkefnum og prófum
• Nemendur þurfa að fá a.m.k. sjö af tíu í einkunn í öllum greinum
• Gert er ráð fyrir að nemendur mæti í allar vettvangs- og æfingaferðir
• Námið byggir á námskrá fyrir leiðsögunám sem gefin var út af Menntamálaráðuneytinu árið 2004
• Námið er viðurkennt af Félagi leiðsögumanna
Verð
• Inntökupróf í erlendu tungumáli kostar 10.000 kr. og verða þau haldin í haust
• Verð: kr. 285.000
• Þeir nemendur sem ekki eru í fullu námi greiða 18.000 kr. fyrir hverja einingu
• Kostnaður vegna vettvangsferða er innifalinn að öðru leiti en því að nemendur greiða sjálfir fyrir uppihald í ferðum
• Námsgögn eru ekki innifalin í námsgjöldum
• Vinsamlega athugið að ekki er hægt að fá námsgjald fellt niður þótt nemandi hætti í náminu
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Guðjónína Sæmundsdóttir: ina@mss.is