Grindavík mátti að endingu þakka fyrir að ná einu stigi gegn Huginn þegar liðin mættust í 1. deild karla á Grindavíkurvelli seint í gærkvöldi. Grindavík jafnaði nánast með síðustu snertingu leiksins 2-2 eftir að hafa lent marki undir og síðan sótt án afláts.
Björn Berg Bryde kom Grindavík yfir og fékk síðan nokkur dauðafæri til að ná tveggja marka forystu. En síðan komu tvö mörk frá Huginn, annað eftir aukaspyrnu og hitt var sannkallað draumamark. Eftir þetta sótti Grindavík grimmt og skapaði sér hvert dauðafærið á fætur öðru án þess að skora. Meira að segja fór vítaspyrna forgörðum.Pressan bar loks árangur á þriðju mínútu uppbótartíma þegar Alexander Veigar Þórarinsson skallaði fyrirgjöf Gunnars Þorsteinssonar í netið. Þetta var áttunda mark Alexanders Veigars í sumar en hann er markahæstur í Inkasso-deildinni. Lokatölur 2-2 í hörkuleik.
Toppliðin í kringum Grindavík töpuðu öll í gærkvöldi þannig að stigið var ágætt úr því sem komið er.
Staðan:
1 KA 13 9 2 2 22 - 10 12 29
2 Grindavík 13 7 4 2 32 - 13 19 25
3 Leiknir R. 13 7 2 4 15 - 13 2 23
4 Keflavík 12 5 6 1 22 - 15 7 21
5 Þór 13 6 1 6 16 - 20 -4 19
6 Selfoss 12 4 4 4 15 - 16 -1 16
7 Fram 13 4 4 5 14 - 19 -5 16
8 Fjarðabyggð 13 3 5 5 20 - 21 -1 14
9 HK 13 3 5 5 17 - 23 -6 14
10 Haukar 13 4 2 7 18 - 26 -8 14
11 Huginn 13 2 4 7 11 - 19 -8 10
12 Leiknir F. 13 2 3 8 15 - 22 -7 9