Opið Svið verður á kaffihúsinu Bryggjunni í Grindavík um verslunarmannahelgina, föstudaginn 29. júlí . Leikar hefjast kl. 21:30 og standa allavega til 00:30. Þetta verður hvorki meira né minna en í 23. skiptið sem opið svið er haldið á Bryggjunni en þessi viðburður er búinn að festa sig í sessi og er gríðar vinsæll. Það kostar ekkert inn og öllum er velkomið að koma með óskalög og/eða taka lagið með þeim Halldóri Lárussyni trommara, Ólafi Þór Ólafssyni gítarleikara og Þorgils Björgvinssyni alltmúligleikara.
Það er um að gera að mæta snemma til að tryggja sér sæti.