1414. fundur Bæjarráðs Grindavíkur haldinn á skrifstofu bæjarstjóra, þriðjudaginn 5. júlí 2016 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson formaður, Kristín María Birgisdóttir varaformaður, Ásrún Helga Kristinsdóttir aðalmaður, Magnús Andri Hjaltason varam. áheyrnarfulltrúa og Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá:
1. 1512073 - Miðgarður: Hönnun
Sigurður Kristmundsson, hafnarstjóri, kom á fundinn og fór yfir málið og svaraði fyrirspurnum.
Hafnarstjórn leggur til að Siglingasvið Vegagerðarinnar hefji vinnu við útboðsgögn vegna uppbyggingu Miðgarðs. Hafnarstjórn leggur til að undirbúningshópur um uppbyggingu Miðgarðs og Siglingasvið Vegagerðarinnar fundi sem fyrst um tilhögun verksins.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela Siglingasviði vegagerðarinnar að hefja vinnu við útboðsgögn vegna uppbyggingar Miðgarðs. Jafnframt samþykkir bæjarráð samhljóða að Grindvíkurbær láni ríkissjóði fyrir því sem á vantar á fjárveitingar samgönguáætlunar en það eru um 166 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að það lán muni endurgreiðast ekki síðar en 2018.
2. 1606051 - Breyting á deiliskipulagi: Norðursvæði sunnan Hópsbrautar
Skipulagsnefnd tók fyrir óverulega breyting á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 norðursvæðis sunnan Hópsbrautar. Breytingin felur í sér að bætt er við í texta að á suðurhlið húsa við Miðhóp 10-16 er leyfilegt að reisa sólskála um allt að 3 metra út fyrir byggingarreit á uppdrætti. Breytingin er unnin af Eflu verkfræðistofu dagsett 16.06.2016.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarráð að tillagan verið samþykkt skv. 2 mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, einnig að tillagan verið samþykkt skv. 3. mgr. 43. gr. sömu laga enda er um óverulegt frávik er að ræða og að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.
3. 1602074 - Breyting á deiliskipulagi norðan Hópsbrautar: Umsókn 2.
Skipulagsnefnd tók fyrir breytingu á deiliskipulagi norðan Hópsbrautar, Tillaga að breytingum er að lóðir við Norðurhóp 1-3-5 og 7-9-11 verða 1-3A-3B-5 og 7-9A-9B og 11 og verða fjórbýli í stað þríbýlis.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarráð að tillagan verið samþykkt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, einnig að tillagan verið samþykkt skv. 3. mgr. 43. gr. sömu laga enda er um óverulegt frávik er að ræða og að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.
4. 1606069 - Breyting á deiliskipulagi: Bakkalág 15
Skipulagsnefnd tók fyrir óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna Bakkalág 15. Tillaga að breytingu er að byggingarreitur við suðurhlið Bakkalág 15 stækkar. Breytingin er unnin af Eflu verkfræðistofu dagsett 23.06.2016
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarráð að tillagan samþykkt skv. 2 mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, einnig að tillagan verið samþykkt skv. 3. mgr. 43. gr. sömu laga enda er um óverulegt frávik er að ræða og að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.
5. 1606053 - Umsókn um byggingarleyfi: Bakkalág 15, viðbygging.
Skipulagsnefnd tók fyrir erindi frá Stakkavík ehf. kt. 480388-1519. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við suðurhlið Bakkalág 15. Erindinu fylgja teikningar unnar af Verkfræðistofu Suðurnesja dagsett 03.04.2009.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarráð að byggingaráformin verði samþykkt með fyrirvara um staðfesta breytingu á deiliskipulagi. Byggingarleyfi eru gefin út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn hafa borist.
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.
6. 1606068 - Breyting á deiliskipulagi: Hafnargata 28 og Seljabót 3
Skipulagsnefnd tók fyrir erindi frá MAR Guesthouse ehf. kt. 681197-2499. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu með 19 herbergjum við austurhlið Hafnargötu 28. Breytingin er unnin af Eflu verkfræðistofu dagsett 23.06.2016.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarráð að tillagan samþykkt skv. 2 mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, einnig að tillagan verið samþykkt skv. 3. mgr. 43. gr. sömu laga enda er um óverulegt frávik er að ræða og að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.
7. 1606007 - Umsókn um byggingarleyfi: Hafnargata 28, stækkun
Skipulagsnefnd tók fyrir erindi frá MAR Guesthouse ehf. kt. 681197-2499. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu með 19 herbergjum við austurhlið Hafnargötu 28. Erindinu fylgja teikningar unnar af Glóru ehf. dags. 12.04.2016.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarráð að byggingaráformin verði samþykkt með fyrirvara um staðfesta breytingu á deiliskipulagi, byggingarleyfi eru gefin út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn hafa borist. Skipulagsnefnd ítrekar að ekki sé leyfilegt að hafa bílastæði við Hópsveg.
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.
8. 1606064 - Umsókn um byggingarleyfi: Stamphólsvegur 5
Erindi frá Grindinni ehf. kt. 610192-2389. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir 23. íbúða fjölbýlishúsi við Stamphólsveg 5. Erindinu fylgja teikningar unnar af JeEs arkitektum dagsettar 01.05.2016.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt og byggingarleyfi gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn hafa borist.
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.
9. 1606059 - Fasteignamat 2017
Bréf frá Þjóðskrá Íslands varðandi fasteignamat næsta árs lagt fram.
Þar kemur fram að fasteignamat í Grindavík er að hækka um 4,6% á milli ára.
10. 1606121 - Laun sveitarstjórnarfulltrúa: Viðmiðun frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Lagt fram.
11. 1606070 - Kortlagning ferðamannastaða: samstarfsbeiðni Ferðamálastofu
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til umhverfis- og ferðamálanefndar til afgreiðslu.
12. 1506146 - Fundargerðir: Reykjanes Geopark
Fundargerðir 26. og 27. fundar lagðar fram til kynningar.
13. 1603016 - Fundargerðir: Samband íslenskra sveitarfélaga 2016
Fundargerð 841. fundar lögð fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30.