Þessar stúlkur á myndinni voru að ljúka námskeiði hjá Rauða krossi Íslands, Börn og umhverfi. Þær heita Aníta, Júlía, Tinna og Júlíana, en á myndina vantar fimmta þátttakandann, Jóhann. Á myndinni eru einnig Lóa Björg leikskólakennari, Gunnar sjúkraflutingamaður og Kolbrún hjúkrunarfræðingur. Námskeið þetta hefur mælst mjög vel fyrir hjá þeim sem tekið hafa þátt og verður eflaust boðið uppá sama námskeið eða annað svipað fljótlega.