Kammerhópurinn Tríó Fókus sem skipa Ingveldur Ýr mezzosópran söngkona, Margrét Th. Hjaltested víóluleikari og Guðríður St. Sigurðardóttir mun halda tónleika í Grindavíkurkirkju mánudaginn 11. júlí 2016, kl. 20:00. Á efnisskránni eru íslensk sönglög og klassísk tónverk eftir Brahms, Loeffler og Bernstein. Tónleikarnir eru klukkustundarlangir. Aðgangseyrir er kr. 2000 / kr. 1500.
Tónleikarnir eru samvinnuverkefni við Félag íslenskra tónlistarmanna - klassíska deild FÍH með styrk frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu
Nánar um Tríó Fókus og tónleikana:
Tríó Fókus skipa Ingveldur Ýr Jónsdóttir mezzosópran söngkona, Margrét Th. Hjaltested víóluleikari og Guðríður St. Sigurðardóttir píanóleikari. Meðlimir Tríó Fókus hafa til margra ára unnið saman og komið fram bæði hér heima og erlendis og hélt Tríóið nú síðast hádegistónleika í Laugarneskirkju fyrir fullu húsi. Meðlimir Tríó Fókus hafa til margra ára unnið saman og komið fram bæði hér heima og erlendis. Ingveldur Ýr og Guðríður hafa verið virkir þátttakendur í íslensku tónlistarlífi sem flytjendur og kennarar. Þær hafa einnig komið fram víða erlendis og ferðuðust vítt og breitt um Kanada og Bandaríkin árin 2002 og 2003. Margrét hefur búið og starfað í New York borg á þriðja áratug. Hún og Ingveldur Ýr hafa unnið saman síðan þær kynntust á námsárunum þar í borg.
Markmið tríósins er að flytja og kynna tónverk frá hinum ýmsu tímum fyrir miðju‐raddi söngs og hljóðfæris, víólu og mezzó raddar ásamt píanói. Einkenni þessara miðju‐radda eru mýkt, fegurð og dulúð. Tríó Fókus hefur lagt í mikla rannsóknarvinnu við að finna verk skrifuð fyrir þessa samsetningu, auk þess að útsetja þekkt lög. Á efnisskránni er blanda af þekktum sönglögum og minna þekktum verkum á ýmsum tungumálu sem eru því bæði áhugaverð fyrir íslenska áheyrendur sem og erlenda. Þar má m.a. nefna verk eftir Loeffler, Brahms, Bernstein, Caccini, Tryggva M. Baldvinsson og þekkt íslensk sönglög. Í beinu framhaldi af landsbyggðartónleikum mun Tríó Fókus leggja land undir fót á næsta ári til New York og Maine fylkja í Bandaríkjunum.