Fimmtudaginn 11. ágúst kl. 17:00 - 18:30 verður fundur í Hópsskóla fyrir foreldra barna sem hefja grunnskólagöngu í haust. Farið verður yfir nokkur atriði sem nýtast barninu á þessum tímamótum. Spjallað verður um komandi vetur og skólastarfið almennt. Vanda Sigurgeirsdóttir mun flytja erindi um samskipti og góðan skólabrag.
Veitingar verða í boði skólaskrifstofunnar