Geo hótel hér í Grindavík hefur undanfarið bætt nokkrum skrautfjöðrum í hatt sinn en hótelið hefur á undanförnum vikum fengið glæsilegar viðurkenningar frá stærstu ferðavefsíðum heims. Booking.com veitti hótelinu nýlega viðurkenningum fyrir framúrskarandi ár en umsagnareinkunn gesta síðunnar er til marks um afburða frammistöðu hótelsins. Er Geo hótel með einkunnina 9,1 á vefsíðunni.
Þá fékk Geo hótel einnig viðurkenningu frá Hotels.com, í flokki sem kallast „Loved by our guests awards". Fékk hótelið gullverðlaun en á hotels.com stendur einkunn þess í 4,7 af 5. Þá barst hótelinu einnig viðurkenning frá Trip Avisor á dögunum, „Certificate of excellence" svo það er greinilegt að gestir kunna vel að meta Geo hótel í Grindavík.
Til hamingju með viðurkenningarnar!