Rauði krossinn í Grindavík heldur námskeiðið Börn og umhverfi fyrir ungmenni fædd á árinu 2004 og eldri.
Á námskeiðinu Börn og umhverfi er farið í ýmsa þætti sem varða umgengni og framkomu við börn. Rætt er um árangursrík samskipti, aga, umönnun og hollar lífsvenjur, leiki og leikföng. Lögð er áhersla á umfjöllun um slysavarnir og algengar slysahættur í umhverfinu ásamt kennslu í skyndihjálp. Að auki fá þátttakendur innsýn í sögu og starf Rauða krossins.
Leiðbeinendur verða Lóa Björg Björnsdóttir leikskólakennari, og Kolbrún Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðingur.
Hvetjum foreldra, forráðamenn og þátttakendur að vera tímanlega í því að bóka því fjöldatakmörkun er á námskeiðið.
Námskeiðsgjald er kr. 2000 kr- Innifalið er námsgögn og hressing.
Kennslan fer fram í húsnæði Rauða krossins í Grindavík, Hafnargötu 13, og skiptist á fjóra seinniparta:
Sunnudagurinn 26. júní frá Kl. 17:00-20:00 Umsjón: Lóa Björg
Efni: RKÍ, þroski barna og samskipti. (Ath breytta dagsetningu frá eldri auglýsingu)
Þriðjudagurinn 28. júní frá Kl. 17:00-20:00 Umsjón: Lóa Björg
Efni: Leikir, leikföng og umönnun.
Miðvikudagurinn 29. júní frá Kl. 17:00- 20:00 Umsjón: Kolbrún
Efni: Slysavarnir.
Fimmtudagurinn 30. júní frá Kl. 17:00 -20:00 Umsjón: Kolbrún
Efni: Skyndihjálp.
Vinsamlegast skráið þátttöku á netfangið kolbrunj@hss.is eða í síma 857-3169 Kolbrún