Hljómsveitin Sigur Rós tókst á við Þjóðveg eitt í rúmlega 24 klukkustunda langri beinni útsendingu á RÚV 2 og RÚV.is. Á hringferðinni var tilbrigði af nýju lagi Sigur Rósar leikið. Hringferðinni er nú lokið en henni lauk í Grindavík, þar sem myndband við lag Sigur Rósar, Óveður, var tekið upp. Myndbandið var frumsýnt í gær og það má sjá hér að neðan.