Út er komið lagið Synthamanía með samnefndri hljómsveit en enginn veit almennilega hverjir meðlimir sveitarinnar eru. Myndbandið við lagið hefur vakið nokkra athygli en leikstjóri þess er Grindvíkingurinn Óskar Kristinn Vignisson. Grindavík.net tók Vigni tali og ræddi við hann um verkefnið en Vignir hefur verið að sækja í sig veðrið í þessum bransa og er með nokkur járn í eldinum þessa dagana:
„Synthamanía er glæný súpergrúbba með þaulreyndum tónlistarmönnum úr allskonar hljómsveitum sem koma saman en mikil dulúð er yfir því hverjir það eru nákvæmlega sem skipa sveitina.
Sveitin hafði samband við Grindvíkinginn Óskar Kristinn Vignisson til að leikstýra myndbandi við nýjasta lag þeirra sem ber einfaldlega nafnið ,,Synthamanía". Aðspurður sagðist Óskar ekki einu sinni hafa vitað lungað af tímanum hverjir skipa hljómsveitna þar sem það var aðeins einn meðlimur sveitarinnar sem var í sambandi við hann. Hann telur þó að það sé líklegt að það komi gestir við sögu hjá þessu bandi og að enn um sinn eru þau ekkert að flagga sér heldur leyfa þau tónlistinni að spila fyrir sig sjálfa.
Þetta er fyrsta myndband Óskars sem sem stefnir að kvikmyndagerð sem hann segist sífellt vera að vinn að en framundan eru nokkur svipuð verkefni eftir aðra tónlistarmenn.
Óskar lærði í myndlistarskólanum í Reykjavík og svo myndlist í Listaháskólanum.
Planið var alltaf að fara í kvikmyndagerð en þar sem kvikmyndanám er takmarkað var hann hvattur til að sækja um í myndlist sem reyndist ótrúlega hollt og gott fyrir hann þar sem hann fékk sjálfstraust til þess að vinna sjálfstætt, öðlast gagnrýna hugsun og fagleg vinnubrögð.
Lokaverkefnið hans var stuttmynd sem hann tók upp í heimabænum Grindavík.
Áður en hann útskrifaðist frétti hann af mögulegu starfi við LHÍ og fór hann þá beint að tala við starfsfólkið í skólanum sem hvatti hann til þess að kanna þetta betur sem hann og gerði og fékk vinnu sem þjónustufulltrúi fyrir myndlistardeild Listaháskólans í maí 2014 strax eftir lokasýninguna sína.
Síðan þá hefur hann einnig verið að kenna við myndbandagerð m.a. fyrsta árs nemum í myndlist og einnig leiðbeinir hann lokaársnemum í vöruhönnun með þeirra myndbönd, auk allskyns verkefna sem hafa dúkkað upp á borðið hjá honum.
Ásamt því hefur hann verið að skrifa niður grófar útlínur af stuttmyndarhandritum sem hann stefnir á að taka upp fljótlega.
Eftir ýmisleg verkefni t.d. að taka upp verk eftir Harald Jónsson, sem var frumsýnt á Skjalborg, kvikmyndahátíðinni á Patreksfirði, hafa allskonar verktakatengd verkefni verið að aukast og því er hann að minnka við sig vinnu sem þjónustufulltrúi í Listaháskólanum frá og með 1. september til þess að einbeita sér að næstu verkefnum sem eru tónlistarmyndbönd fyrir hinar ýmsu hljómsveitir og tónlistarmenn ásamt því að vinna metnaðarfulla stuttmynd. Kvikmyndagerð á því hug hans allan og er alveg ljóst að við eigum eftir að sjá meira af Óskari í framtíðinni. Hægt er að fylgjast með verkum Óskars á heimasíðu hans oskark.com með því að smella HÉR, en hann hefur einnig haldið tvær ljósmyndasýningar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
Óskar gerði einnig myndband við lagið Einsemd eftir Snorra Helga, í samstarfi við leikhópinn Kriðpleir sem við leyfum að fylgja með myndbandinu við Synthamanía en bæði myndbönd er hægt að sjá hér fyrir neðan:“