Í Kvikunni er nú hægt að nálgast nýtt göngu- og útivistarkort fyrir Reykjanesskaga sem Reykjanes UNESCO Global Geopark gaf út á dögunum. Á kortinu má sjá legu meira en 25 gönguleiða og upplýsingar um 55 áhugaverða staði.
Kortið er handteiknað og vatnslitað af mikilli nákvæmni uppúr hæðalínugrunni, loftmyndum og fjölda ljósmynda. Markmiðið var að gera eigulegt og sígilt kort sem er einfalt aflestrar. Segja má að kortagerðarfólkinu hjá Borgarmynd sem unnu að kortinu hafi tekist vel upp enda er kortið fallegt að sjá.
Kortið er gefið út í takmörkuðu upplagi nú í sumar með það að markmiði að fá viðbrögð frá notendum. Óhjákvæmilega slæðast villur með í fyrstu útgáfu korta þrátt fyrir vandaðan prófarkarlestur og yfirlegu. Aðstandendur eru því afar þakklátir þeim sem benda á það sem betur má fara rétt eins og það sem vel er gert. Unnið verður úr ábendinunum við aðra útgáfu kortsins. Einfaldast er að senda póst á info@reykjanesgeopark.is eða senda skilaboð gegnum Facebook-síðu Reykjanes Geopark.
Einstaklingum og fyrtækjum verður boðið að kaupa sérprentanir af kortinu með haustinu á kostnaðarverði.