1411. fundur Bæjarráðs Grindavíkur haldinn á skrifstofu bæjarstjóra, þriðjudaginn 7. júní 2016 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson varaformaður, Kristín María Birgisdóttir formaður, Ásrún Helga Kristinsdóttir aðalmaður, Marta Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi og Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá:
1. 1606019 - Beiðni um skipti á lóðum: Vörðusund 4 og hjallasvæði á reit i5
Minnisblað bæjarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs um framkvæmdir við fiskhjalla hjá Þurrkuðum fiskafurðum og skuldastöðu Staðarþurrkunar við Grindavíkurbæ lagt fram.
Bæjarráð hafnar erindinu.
2. 1605005 - Beiðni um umsögn: Golfklúbbur Grindavíkur, rekstrarleyfi fyrir veitingastað
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við veitingu leyfisins.
3. 1605058 - Eignasjóður: Reiknuð leiga 2016, viðauki við fjárhagsáætlun
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2016 vegna endurreiknings á innri leigu. Viðaukinn felur í sér hækkun gjalda hjá aðalsjóði að fjárhæð 50.184.495 og lækkun gjalda hjá þjónustumiðstöð að fjárhæð 744.679 kr. Fjármögnun er með hækkun tekna eignasjóðs að fjárhæð 49.439.816 kr.
Bæjarráð samþykkir viðaukann.
4. 1605057 - Grindavíkurbær: Reiknuð afnot 2016, viðauki við fjárhagsáætlun.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2016 vegna leiðréttinga á reiknuðum afnotum og kostnaðarþátttöku samkvæmt þeim samningum sem eru í gildi. Viðaukinn felur í sér hækkun útgjalda á málaflokkum aðalsjóðs að fjárhæð 4.500.000 kr. sem fjármögnuð er með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð samþykkir viðaukann.
5. 1605052 - Stefnumótun til framtiðar: Umhverfis- og ferðamál
Tillaga umhverfis- og ferðamálanefndar um stofnun embættis ferðamálafulltrúa lögð fram.
Bæjarráð þakkar fyrir tillögu nefndarinnar og felur bæjarstjóra og formanni bæjarráðs að skipuleggja samráðsfund þar sem farið verði yfir stefnu bæjarins í ferðmálum.
6. 1512122 - Björgunarsveitin Þorbjörn: Nýr samstarfssamningur
Undirritaður samningur við Björgunarsveitina Þorbjörn lagður fram til staðfestingar.
Jafnframt er óskað eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2016 vegna kostnaðarauka við samninginn að fjárhæð 1.579.000 kr. sem fjármagnað verði með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð staðfestir samninginn og samþykkir viðaukann.
7. 1601002 - Unglingadeildin Hafbjörg: Nýr samstarfssamningur
Undirritaður samningur við Unglingadeildina Hafbjörg lagður fram til staðfestingar.
Bæjarráð staðfestir samninginn.
8. 1601018 - Slysavarnardeildin Þórkatla: Samstarfssamningur
Undirritaður samningur við Slysavarnardeildina Þórkötlu lagður fram til staðfestingar.
Bæjarráð staðfestir samninginn.
9. 1605024 - Umferðaröryggi: ósk um hraðatakmarkandi aðgerðir á Gerðavöllum
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar og felur sviðstjóra skipulags- og umhverfissviðs að senda íbúum við Gerðavelli og aðliggjandi gatna bréf með tillögunni til kynningar. Íbúum sé gefinn kostur á að skila inn athugasemdum innan 2 vikna.
10. 1605069 - Umferðaröryggi: ósk um hraðatakmarkandi aðgerðir í Efstahrauni.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar og felur sviðstjóra skipulags- og umhverfissviðs að senda íbúum við Efstahraun bréf með tillögunni til kynningar. Íbúum sé gefinn kostur á að skila inn athugasemdum innan 2 vikna.
11. 1603016 - Fundargerðir: Samband íslenskra sveitarfélaga 2016
Fundargerð 839. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram.
Bæjarráð tekur undir með stjórn Sambandsins að það sé brýnt að ríkisvaldið komist sem allra fyrst að niðurstöðu um, hvernig aukinna tekna af ferðamönnum verður aflað til þess að fjármagna nauðsynlega uppbyggingu innviða ferðaþjónustu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:40.