Sveitarfélögin á Suðurnesjum í samvinnu við BROS bræður standa í dag fyrir ókeypis sýningu á heimildarmyndinni „Maðurinn sem minnkaði vistspor sitt" en myndin segir frá baráttu Sigga fyrir því að minnka vistspor sitt. Hægt er að nálgast stiklu úr myndinni á www.manwhoshrunk.com. Athugið breyttan sýningarstað, en myndin verður sýnd í Berginu, Hljómahöll, í dag kl. 17:00. Aðgangur er eins og áður segir ókeypis en rútuferð frá Grindavík hefur verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.