Í dag 2. júní var Grænfánanum flaggað í fyrsta sinn í Grunnskóla Grindavíkur. Fáninn var afhentur með viðhöfn á Vorgleðinni í Hópskóla. Halldóra Kr. Magnúsdóttir skólastjóri setti athöfnina og bauð fólk velkomið þá flutti Katrín Magnúsdóttir verkefnisstjóri Skóla á grænni grein hjá Landvernd stutt ávarp og afhenti fánann. Kristín María Birgisdóttir formaður umhverfisnefndar og fjórir nemendur skólans veittu fánanum viðtöku og drógu nemendurnir hann í sameiningu að húni.
Í skýrslu frá Landvernd, vegna Grænfánaúttektarinnar hjá okkur segir „Skólinn stendur sig mjög vel í umhverfismálum og hefur gert mjög margt sem fellur vel að Grænfánaverkefninu. Við hvetjum ykkur fyrir næsta tímabil að halda áfram þessari góðu vinnu og vinna markvisst að verkefninu í samvinnu við nemendur„ Á þessu tímabili vann skólinn með þemun átthaga, úrgang og neyslu.
Skólar á grænni grein
Skólar á grænni grein er alþjóðlegt verkefni til að auka umhverfismennt og styrkja menntun til sjálfbærni í skólum. Skólar ganga í gegnum sjö skref í átt að aukinni umhverfisvitund og sjálfbærni. Þegar því marki er náð fá skólarnir að flagga Grænfánanum til tveggja ára og fæst sú viðurkenning endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi.
Grænfáninn er umhverfisviðurkenning sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Skrefin sjö eru ákveðin verkefni sem efla vitund nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans um umhverfismál. Verkefnin eru bæði til kennslu í bekk og til að bæta daglegan rekstur skóla. Þau styrkja grunn að því að tekin sé ábyrg afstaða og innleiddar raunhæfar aðgerðir í umhverfismálum og sjálfbærni innan skólans. Jafnframt sýnir reynslan að skólar sem taka þátt í verkefninu geta sparað talsvert í rekstri.
Markmið verkefnisins er að:
• Bæta umhverfi skólans, minnka úrgang og notkun á vatni og orku.
• Efla samfélagskennd innan skólans.
• Auka umhverfisvitund með menntun og verkefnum innan kennslustofu og utan.
• Styrkja lýðræðisleg vinnubrögð við stjórnun skólans þegar teknar eru ákvarðanir sem varða nemendur.
• Veita nemendum menntun og færni til að takast á við umhverfismál.
• Efla alþjóðlega samkennd og tungumálakunnáttu.
• Tengja skólann við samfélag sitt, fyrirtæki og almenning.
Landvernd
Grænfánaverkefninu á Íslandi er stýrt af Landvernd sem er aðili að alþjóðlegu samtökunum FEE. Stýrihópur um Grænfána er Landvernd til fulltingis um allt sem viðkemur verkefninu.