1. Nýtt deiliskipulag fiskeldis á Stað
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar samþykkti þann 26. apríl 2016, deiliskipulag fiskeldis á Stað. Tillagan fjallar um uppbyggingu fiskeldis með eldiskerjum, borholur fyrir neysluvatn og aðstöðu. Engar athugasemdir bárust. Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 41. og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
2. Nýtt deiliskipulag fyrir elsta hluta þéttbýlisins í Grindavík, Gamli bærinn
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar samþykkti þann 29. mars 2016, deiliskipulag gamla bæjarins í Grindavík. Tillagan fjallar um elsta hluta þéttbýlisins, húsagerðir, lóðastærðir, ásýnd byggðar og nýjar götur. Athugasemdir bárust og hefur þeim sem gerðu athugasemdir verið svarað með umsögn bæjarstjórnar. Deiliskipulagið vara samþykkt með þeim breytingum að feldir voru út byggingarreitir við Vesturbraut, Víkurbraut og Kirkjustíg. Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 41. og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Tillögurnar má nálgast hér að neðan, einnig er hægt að nálgast nánari upplýsingar hjá undirrituðum. Auglýsing um staðfestingu skipulagana hefur verið send til b-deildar stjórnartíðinda. Hægt er að kæra samþykkt bæjarstjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála Skuggasundi 3, 101 Reykjavík, nánar á heimasíðu nefndarinnar www.uua.is kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar í b-deild stjórnartíðinda.
Ármann Halldórsson, skipulagsfulltrúi Grindavíkur
Tillaga að deiliskipulagi - Fiskeldi á iðnaðarsvæði i7 í Grindavík