Hinn hefðbundni dans- og sparifatadagur var sl. föstudag hjá 10. bekk í Grunnskóla Grindavíkur. Hefð er fyrir því að Harpa Pálsdóttir danskennari komi einn morgun rétt undir lok skólaársins og rifji upp með þeim þá dansa sem sem þau lærðu þegar þau voru á miðstigi. Þau mæta í sínu fínasta pússi og dansa á sal frá 8:00-11:00. Er þetta liður í því að undirbúa unglingana félagslega fyrir fullorðinsárin.
Allir skemmtu sér konunglega eins og sést á meðfylgjandi myndum. Fleiri myndir eru á Facebook síðu skólans.