Það verða angurværir gítartónleikar á Bryggjunni annað kvöld en þá stígur á stokk söngvaskáldið Svavar Knútur en með honum í för verður hinn ástralski Tim McMillan. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og eins og alltaf þá er frítt inn á Bryggjunni og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Nánar um tónleikana hér að neðan:
Ástralski gítarleikarinn Tim McMillan er á leiðinni til Íslands í fyrsta skipti. Gestgjafi hans á ferðalaginu um Frón er söngvaskáldið Svavar Knútur, en þeir Tim hafa verið vinir síðan þeir kynntust í Ástralíu árið 2007.
Tim McMillan nýtur mikilla vinsælda bæði í Ástralíu og í Evrópu og hefur hann getið sér gott orð sem einn færasti og skemmtilegasti gítarleikari samtímans. Auk þess að syngja og spila segir hann líka stórkostlegar sögur ef sá gállinn er á honum og veltast áhorfendur gjarnan um af hlátri að undarlegum vangaveltum Tim.
Tim McMillan hóf feril sinn sem þungarokks virtúós, en tók kassagítarinn upp á arma sína á meðan hann var að jafna sig eftir alvarleg rokkmeiðsl. Ekki varð aftur snúið, en Tim kallar tónlistina sem hann flytur "Goblincore" til heiðurs þungarokksrótum sínum.
Tim kemur ekki einsamall til Íslands, heldur er með honum í för fiðluleikarinn Rachel sem einnig syngur með honum. Gestir verða ekki sviknir um óviðjafnanlegt laugardagskvöld á Bryggjunni.
Svavar Knútur hitar upp fyrir vin sinn og sér um að vel fari um þessa góðu gesti á meðan á dvöl þeirra á Íslandi stendur.
Ókeypis er inn að vanda á Bryggjunni.
Hér eru tvo frábær myndbönd sem sýna hvað Tim er að gera.