Hreyfivikan heldur áfram og er nóg um að vera í grunnskólanum og leikskólunum. Í gær bauð Hjólakraftur og Hjólreiðanefnd Grindavíkur upp á þrjár mismunandi hjólreiðaleiðir í tilefni Hreyfivikunnar og var mætingin ljómandi fín. Hjólreiðakappar komu víða að.
Hægt var að velja eftirfarandi leiðir:
1) Grunnhringur á fjallahjólum - Hópsnes-Hesthús-námur-Skógrækt-heim um Norðurljósaveg og inn á Ingi-bjargarstíg. Endað hjá kaffihúsinu Bryggjunni. Þessi leið er fyrir fjallahjól.
2) Farið út í virkjun - viðkoma í kirkjugarði - Bjarnahringur. Endað hjá kaffihúsinu Bryggjunni. Þessi leið er fyrir allar tegundir hjóla.
3) Festarfjall - Suðurstrandarvegur að Krýsuvíkurvegi - til baka. Endað hjá kaffihúsinu Bryggjunni. Þessi leið er fyrir allar tegundir hjóla.
Myndin er af hópnum sem hjólaði með Bjarna Svavarssyni.