Á yngsta stigi eru svokallaðir smiðjutímar tvisvar í viku og eru viðfangsefni að mestu verkleg kennsla. Nemendur unnu samstarfsverkefni í myndmennt, Hér og nú smiðju og textílmennt. Endurnýting var þar m.a. höfð að leiðarljósi, þar sem box undan osti var skreytt í myndmennt, inni í boxinu er svo efni þar sem nemendur saumuðu þræðispor í textílmennt og að lokum höfðu nemendur fundið steina úti í Hér og nú smiðju sem þá langaði að geyma í boxinu sínu. Ferlið var skemmtilegt og útkoman góð og vonandi geymast boxin vel um ókomin ár.