Talsvert er af óskilafatnaði í íþróttamiðstöðinni eftir veturinn. Kennir þar ýmissa grasa, eins og allt frá nærbuxum, glæsilegum íþróttafatnaði, sundskýlum og bolum og upp í fínustu skó. Óskilafatnaðurinn liggur frammi í anddyri til 25. maí. Eru Grindvíkingar hvattir til þess að athuga með óskilafatnaðinn í íþróttamiðstöðinni. Það sem ekki verður sótt verður gefið í Rauða krossinn.