1409. fundur Bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 10. maí 2016 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson varaformaður, Kristín María Birgisdóttir formaður, Ásrún Helga Kristinsdóttir aðalmaður, Marta Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi, Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Róbert Ragnarsson bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
1. 1602168 - Umsókn um byggingarleyfi: fjarskiptamastur við Víkurbraut 25.
Svanur Baldursson, sviðsstjóri hýsingar Mílu og Elmar Torfason hönnuður hjá stofnneti Mílu koma til fundarins og kynna hugmyndir fyrirtækisins um fjarskiptamastur við Víkurbraut 25, og svöruðu spurningum bæjarráðs.
2. 1601010 - Biðlistar í leikskólum og nemendafjöldi í skólum.
Lagt fram minnisblað fræðslunefndar um skipan starfshóps til að vinna framtíðaráætlun um hvernig brugðist verði við auknum nemendafjölda í leik- og grunnskóla á næstu árum. Lagt er til að í hópnum verði sjö aðilar auk sérfræðings á umhverfis- og skipulagssviði. Með fylgir drög að erindisbréfi hópsins. Fræðslunefnd leggur til við bæjarráð að starfshópurinn verði stofnaður og að fulltrúar foreldra leikskóla- og grunnskólabarna eigi fulltrúa í hópnum og hópurinn verði þá níu manns. Fræðslunefnd tilnefnir Guðmund Grétar Karlsson sem aðalmann og Þórunni Svövu Róbertsdóttur til vara. Fræðslunefnd óskar eftir tilnefningu frá öllum aðilum fyrir 27. maí nk.
Jafnframt er lögð fram greinargerð Halldóru K. Magnúsdóttur skólastjóra sem eru tillögur í sjö liðum. Fræðslunefnd líst vel á framkomnar tillögur sem snúa að því að bæta starfsaðstöðu nemenda og starfsfólks. Nefndin bindur vonir við vinnu starfshóps um framtíðaráætlun skólahúsnæðis v/fjölgunar nemenda þar sem framkomnar tillögur eru hugsaðar til bráðabirgða.
Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum og frestar afgreiðslu.
3. 1605003 - Heilsuleikskólinn Krókur: beiðni nemenda um gervigras á sparkvöll
Nemendur á Heilsuleikskólanum Króki óska eftir gervigrasi á sparkvöll á skólalóðinni, og öðru marki við völlinn. Kostnaðaráætlun sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs er um 1.100.000 kr.
Bæjarráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar í haust.
4. 1603026 - Knattspyrnufélagið GG: Beiðni um styrk
Tillaga að samningi við Knattspyrnufélagið GG lagður fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samninginn og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2016 að fjárhæð 200.000 kr. sem komi til lækkunar á eigin fé.
5. 1605024 - Umferðaröryggi: ósk um hraðatakmarkandi aðgerðir á Gerðavöllum
Birgitta Rán Friðfinnsdóttir og Einar Hannes Harðarson leggja fram beiðni um hraðatakmarkandi aðgerðir á Gerðavöllum. Beiðninni fylgja hugmyndir að úrbótum og undirskriftir 332 aðila sem styðja beiðnina.
Bæjarráð vísar erindinu til skipulagsnefndar sem leggi fram tillögu að útfærslu á hraðatakmarkandi aðgerðum á Gerðavöllum fyrir júnílok.
6. 1604020 - Þjónustumiðstöð: sláttur opinna svæða
Minnisblað byggingafulltrúa dags. 3. maí 2016 lagt fram, þar sem farið er yfir tilboð í verkin Sláttur opinna svæða og Sláttur á heimagörðum.
Eitt tilboð barst í hvort verkefni.
Byggingafulltrúi leggur til að samið verði við lægstbjóðanda, en vekur jafnframt athygli á því að fjárheimildir fjárhagsáætlunar ársins 2016 duga ekki.
Bæjarráð felur byggingafulltrúa að ganga til samninga við lægstbjóðanda í verkið Sláttur opinna svæða, en hafnar tilboði í verkið Sláttur á heimagörðum.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2016 að fjárhæð 2.000.000 kr.
7. 1605025 - Endurnýjun gönglýsingar að Víðihlíð
Minnisblað byggingafulltrúa dags. 3. maí 2016 lagt fram, þar sem farið er yfir tilboð í verkin Endurnýjun lýsingu við göngustíg: Jarðvinnuþáttur og Endurnýjun lýsingu við göngustíg: Raflagnir.
Þrjú tilboð bárust í jarðvinnuþáttinn og tvö tilboð í raflagnaþáttinn.
Byggingafulltrúi leggur til að samið verði við lægstbjóðendur.
Bæjarráð felur byggingafulltrúa að ganga til samninga við lægstbjóðendur í hvort verkefni um sig.
8. 1605026 - Skýrsla starfshóps innanríkisráðherra um jafnt búsetuform barna sem búa á tveimur heimilum
Skýrslan er lögð fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30.