Golfklúbbur Grindavíkur hefur samþykkt siðareglur fyrir félagið. Markmiðið með þeim er að veita félagsmönnum sínum, kylfingum, þjálfurum, sjálfboðaliðum og stjórnarmönnum almennar leiðbeiningar í leik og starfi. GG, UMFG og Brimfaxi hafa öll unnið að siðareglum fyrir sín félög í samræmi við samstarfssamning þeirra við Grindavíkurbæ. UMFG hefur einnig samþykkt sínar siðareglur og Brimfaxi er langt komið með sínar reglur og verða þær kynntar fljótlega.
Siðareglur Golfklúbbs Grindavíkur