Árviss Mörtuganga

  • Grunnskólinn
  • 26. apríl 2016

Árleg Mörtuganga verður farin í skólanum föstudaginn 29. apríl. Allir nemendur skólans verða úti og ganga þennan dag til minningar um Mörtu Guðmundu Guðmundsdóttur kennara en hún var fædd þann 29. apríl 1970. Hefðbundið skólastarf verður lagt til hliðar þennan dag.
Marta var mikill göngugarpur og fór meðal annars í ofurgöngu yfir Grænlandsjökul eftir að hún greindist veik af krabbameini.
Minningu Mörtu viljum við halda á lofti og er þessi árlega gönguferð skólans hluti af því.

Marta var Grindvíkingur, dóttir Guðmundar Finnssonar og Höllu Ágústsdóttur. Hún lét eftir sig eina dóttur, Andreu Björt Ólafsdóttur, f. 1995. Marta hafði kennt við skólann í nokkur ár er hún greindist með krabbamein og lést hún í nóvember árið 2007. Hún var íþróttakona, spilaði meðal annars körfubolta og eftir því sem best er vitað spilaði hún tvo A landsliðsleiki, tvo B landsliðsleiki, einn U20 landsliðsleik og þrjá U18 landsliðsleiki.

Ákveðið var á meðal starfsmanna að fara með árgangana á eftirtalda staði og láta það svo verða að hefð á næstu árum.

• Þórkötlustaðarhverfi 1. bekkur
• Hópsneshringurinn 2. bekkur
• Gálgaklettar 3. bekkur
• Hringur í kringum Þorbjörn 4. bekkur
• Húsafell 5. bekkur
• Rásin, í áttina að kirkjugarðinum á Stað 6. bekkur
• Prestastígur, Skógfellavegur, Golfvöllur-Bláa lónið-Grindavík, Hesthellir. Fjórar mismunandi leiðir í boði fyrir 7.-10. bekk.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!