Atvinna - Starfsmenn viđ íţróttamiđstöđ Grindavíkur - Framtíđarstörf

  • Fréttir
  • 25. apríl 2016

Grindavíkurbær auglýsir eftir 2 starfsmönnum (karl og kona) til að starfa við íþróttamiðstöðina.
Helstu verkefni eru öryggisgæsla í sundlaug, klefavarsla (bæði karl og kona), ræstingar, eftirlit og afgreiðsla. Um er að ræða tvö framtíðarstörf í vaktavinnu. Starfshlutfall er 100%. Reiknað er með að viðkomandi hefji störf 15. ágúst 2016
Leitað er að einstaklingum sem hefur;


- ríka þjónustulund,
- góða skipulagshæfileika, getur unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði,
- góða hæfni í mannlegum samskiptum,
- reynslu og ánægju af því að vinna með börnum og unglingum
- þekkingu í skyndihjálp og getu til að standast kröfur sem gerðar eru til sundlaugarvarða.
- hreint sakavottorð

Vakin er athygli á því að ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ GRINDAVÍKUR ER TÓBAKSLAUS VINNUSTAÐUR.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Suðurnesja.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hermann Guðmundsson forstöðumaður íþróttamannvirkja í síma 660 7304, netfang: hermann@grindavik.is.

Umsækjendur sæki eyðublað á www.grindavik.is/eydublod og fylli út eyðublaðið Umsókn um starf hjá Grindavíkurbæ.

Senda skal útfyllta umsókn á hermann@grindavik.is, í síðasta lagi 1. júlí 2016 n.k.

Íþróttamiðstöð Grindavíkur

 



Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir