Námskeið byrjar í Sundlaug Grindavíkur mánudaginn 25.april 2016 (stefnt að ca. 8-10 skiptum). Vatnsleikfimi er mjög góð þjálfun fyrir kropp og geð og hentar sérstaklega vel fyrir þá sem eiga erfitt með að stunda hefðbundna likamsrækt t.d vegna þyngdar eða stoðkerfisvanda.
Hver og einn vinnur eftir sinni getu og ástandi hverju sinni, við erum glöð og kát og njótum okkar í frábærum félagsskap hvers annars. Hentar báðum kynjum. Allir velkomnir
Að þessu sinni verður eingöngu einn hópur:
Kennt er á mánudögum og miðvikudögum kl 16:00-16:50
Verð:
67 ára og eldri án endurgjalds
Yngri en 67ára: Aðgangur að sundlaug í afgreiðslu og 6000.- kr, greitt til þjálfara.
Leiðbeinandi er Arna Þ. Björnsdóttir, ÍAK þjálfari og jógakennari.
Skráning og upplýsingar í síma 863 5254 og á ellis@simnet.is.