Í samræmi við framkvæmdaáætlun Jafnréttisstefnu Grindavíkurbæjar var ráðist í jafnlaunaúttekt hjá Grindavíkurbæ fyrir árið 2015, en þetta er í fyrsta skipti sem slíkt úttekt fer fram. Undanfarin ár hefur markvisst verið unnið að því að draga úr óútskýrðum launamun.
Helstu niðurstöður könnunarinnar eru á þá leið að óútskýrður launamunur er nú aðeins 0,8% af grunnlaunum, en 4,7% af heildarlaunum. Grindavík er í 3. sæti af 49 hvað varðar grunnlaun, en 13. sæti hvað varðar heildarlaun.
Eins og sjá má erum við á réttri leið í þessum málum og hefur munurinn minnkað töluvert undanfarin ár. Telja má sennilegt að munurinn sem enn stendur eftir skýrist helst af arfleið fortíðar, gömlum samningum sem smám saman hverfa úr kerfinu með nýjum og breyttum áherslum í launamálum kynjanna.
Samkvæmt framkvæmdaáætlun Jafnréttisstefnu Grindavíkurbæjar fara þessar kannanir fram annað hvert ár og næsta könnun verður því 2017.