Engin kennsla verður í Grunnskólanum á fimmtudag og föstudag þar sem fimmtudagurinn 21. apríl er sumardagurinn fyrsti og föstudaginn 22. apríl er skipulagsdagur.
Sumardagurinn fyrsti, einnig kallaður Yngismeyjardagur, er fyrsti dagur Hörpu, sem er fyrstur af sex sumarmánuðum í gamla norræna tímatalinu. Sumardaginn fyrsta ber alltaf upp á fimmtudag á tímabilinu frá 19.-25. apríl (það er fyrsta fimmtudag eftir 18. apríl). Sumardagurinn fyrsti var lengi messudagur eða til 1744.