Einhverfusamtökin standa um þessar mundir að fræðsluátaki. Einkunarorð átaksins eru: Virðing - Samþykki - Þátttaka.
Í þessum fyrsta áfanga er skólaumhverfi barna og ungmenna í brennidepli. Markmiðið er að upplýsa, fræða og vinna gegn fordómum. Unnið er að gerð myndefnis og lesefnis. Styrktaraðilar verkefnisins eru Sorpa, Öryrkjabandalag Íslands og Velferðarráðuneytið.
Í fyrsta myndbandinu er rætt við hann Alexander Birgir Björnsson okkar, sem sennilega allir Grindvíkingar þekkja enda stórkostlegur drengur í alla staði.
Vídjóið má sjá hér: https://vimeo.com/162953833