Leikjanámskeið verður starfrækt að vanda í sumar. Skráning er hafin í gegnum heimasíðu bæjarins (sjá leiðbeiningar að neðan). Frístunda- og menningarnefnd hefur samþykkt tillögu sviðsstjóra um sem gerir ráð fyrir talsverðum breytingum á skipulagi námskeiðsins til þess að vera innan fjárheimildar í ljósi eftirspurnar. Meðal annars verður eingöngu boðið upp á pláss hálfan daginn og námskeiðið verður eingöngu fyrir 1.-3. bekk. Þá verður ekki námskeið í ágúst.
Í sumar verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn sem eru að ljúka námi í 1.-3. bekk í vor (árgangar 2007, 2008 og 2009) þar sem viðfangsefnin eru skemmtileg og uppbyggjandi. Mikið er lagt upp úr útiveru.
Hámarksfjöldi barna á hverju námskeiði er 30-35 fyrir hádegi og 30-35 eftir hádegi, samtals 60-70 á dag. Þegar námskeiðin eru full verður hægt að skrá barn á biðlista. Ef biðlistar verða langir verður skoðað hvort hægt sé að bregðast við því.
ATHUGIÐ!
Valkostir:
Námskeið 1: 6. júní - 16. júní (9 dagar vegna 17. júní). Verð: 6.300 kr.
Námskeið 2: 20. júní - 1. júlí (10 dagar): Verð: 7.000 kr.
Námskeið 3: 4. júlí - 15. júlí (10 dagar): Verð: 7.000 kr.
Námskeið 4: 18. júlí - 28. júlí (9 dagar, lokað föstudaginn 29. júlí). Verð: 6.300 kr.
SKRÁNING:
Fer fram í gegnum Google docs - Smellið hér til að skrá inn.
Ekki er tekið við skráningum með öðrum hætti.
Leiðbeiningar:
1. SKYLT er að fylla allar upplýsingar samviskusamlega út.
2. Í skjalinu eru 4 "sheet" (blaðsíður), þ.e. eitt fyrir hvert námskeið (sjá neðst í skjalinu, merkt NÁMSKEIÐ 1 osfrv. Smellið á til að fara á milli námskeiða).
3. Athugið að tveir möguleikar eru í hverju skjali, þ.e. að skrá barn fyrir EÐA eftir hádegi (ekki hægt að skrá allan daginn).