Á glæsilegri árshátíð Grindavíkurbæjar sem haldin var í Lava-sal Bláa Lónsins síðasta laugardag, fengu fjórir starfsmenn bæjarins starfsaldursviðurkenningar fyrir margra áratuga starf í þágu bæjarins. Valdís Kristinsdóttir grunnskólakennari, Kristín Elísabet Pálsdóttir leikskólakennari og Ólína Þuríður Þorsteinsdóttir starfsmaður íþróttamiðstöðvar fengu viðurkenningu fyrir 30 ára starf og Stefanía Ólafsdóttir grunnskólakennari fyrir 40 ára starf. Samtals hafa þær 130 ára starfsreynslu hjá Grindavíkurbæ.
Mynd, frá vinstri: Kristín Elísabet Pálsdóttir, Valdís Kristinsdóttir, Ólína Þuríður Þorsteinsdóttir og Stefanía Ólafsdóttir.