Međ hjálm á hjólabretti

  • Fréttir
  • 8. apríl 2016

Á skólalóð Hópsskóla hefur  verið lokið við að setja upp hjólabrettapalla, samkvæmt upphaflegu skipulagi skólalóðar. Pallar þessir eru frábær viðbót við aðra leikaðstöðu á lóðinni og hafa nemendur verið áhugasamir um þessar framkvæmdir.
Ármann Halldórsson faðir eins nemenda við skólann en jafnframt sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Grindavíkurbæjar, leit við í einum frímínútum og sýndi nemendum undirstöðuatriðin þegar verið er á bretti.  

Fórst honum það vel úr hendi enda þaulreyndur á hjólabretti. Lagði hann ríka áherslu á að nemendur gættu sín ávallt á því að vera með hjálm þegar leikið væri á hjólabrettapöllunum. Margir nemendur fengu að prófa að fara eina ferð og þótti þeim það voða spennandi.   Ármann tók vel í það að mæta aftur og leiðbeina enn frekar en jafnframt benti hann á að hægt væri að fara á námskeið hjá Brettafélagi Hafnarfjarðar.

 

 

 

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir