Undirbúningsfundur vegna Sjóarans síkáta verður haldinn miðvikudaginn 13. apríl n.k. á bæjarskrifstofunum kl. 12-13. Boðaðir hafa verið helstu undirbúningsaðilar á fundinn eins og Sjómanna- og vélstjórafélagið, Björgunarsveitina Þorbjörn, slysavarnadeildin Þórkatla, fulltrúar litahverfanna, bæjarins, sjúkraflutningar og þjónustuaðilar. Allir aðrir áhugasamir bæjarbúar um bæjarhátíðina okkar eru einnig velkomnir á fundinn. Sjóarinn síkáti verður haldinn 3.-5. júní n.k. Hátíðin fagnar 20 ára afmæli í ár og Sjómanna- og vélstjórafélagið heldur upp á 60 ára afmælið í ár.