Undanúrslitaeinvígi Grindavíkur og Snćfells hefst í kvöld

  • Fréttir
  • 23. mars 2009

Undanúrslit Íslandsmótsins í körfuknattleik karla hefjast hjá Grindavík í kvöld þegar Snæfell kemur í heimsókn. Þetta er endurtekning á undanúrslitaeinvígi liðanna frá því í fyrra en þá hafði Snæfell betur. Nú er kjörið tækifæri fyrir Grindavík að hefna fyrir það. Búist er við hörku leikjum. Grindavík varð í 2. sæti deildarinnar en Snæfell í því þriðja.

Grindavík hefur aðeins einu sinni hampað Íslandsmeistaratitlinum en teflir fram öflugu og reynslumikli liði að þessi sinni sem hefur alla burði til þess að hampa þeim stóra í ár.
Miklu máli skiptir að mæta í íþróttahúsið og styðja vel við bakið á strákunum í kvöld gegn spræku liði Snæfells sem er sýnd veiði, en ekki gefin.

Grindavík - Snæfell
1. leikur 23. mars, mánud. kl. 19.15 Grindavík-Snæfell - Grindavík
2. leikur 25. mars, miðvd. kl. 19.15 Snæfell-Grindavík - Stykkishólmur
3. leikur 28. mars, laugard. kl. 15.15 Grindavík-Snæfell - Grindavík
4. leikur 31. mars, þriðjd. kl. 19.15 Snæfell-Grindavík - Stykkishólmur (EF ÞARF)
5. leikur 2. apríl, fimmtud. kl. 19.15 Grindavík-Snæfell - Grindavík (EF ÞARF)


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir