Skólanum berast stundum góðar gjafir t.d. frá foreldrum eða öðrum velgjörðarmönnum og kann skólinn þeim bestu þakkir fyrir. Björn Atli Hyldhal Guðmundsson nemandi í 3. bekk heldur hér á kassa fullum af verðmætu og góðu útsaumsgarni. Móðir hans Lóa Björg H Björnsdóttir færði skólanum þessa góðu gjöf en garnið var úr búi ömmu hennar. Garnið kemur sér einkar vel þegar 3.bekkur í textílmenntsmiðju saumar út í pokann sinn sem er eitt helsta viðfangsefni þeirra í smiðjunni í vetur.