Steinunn Marta í 4. bekk var svo heppin að vera dregin út úr fjölda þátttakenda í kosningunni um bókaverðlaun barnanna hjá okkur á bókasafninu. Hún fékk viðurkenningarskjal og bókargjöf að launum.
Á sumardaginn fyrsta verður tilkynnt hvaða bók vann til verðlauna, en okkur á safninu grunar sterklega að "Mamma klikk" eftir Gunnar Helgason sigri, að minnsta kosti ef miðað er við tölfræðina á okkar safni.