Vel heppnað kaffihúsakvöld unga fólksins var haldið í húsnæði Slysavarnarfélagsins Þórkötlu. Þar kom fram tónlistarfólk af yngri kynslóðinni frá Grindavík sem stóð sig virkilega vel, tónlistaratriðin voru fjölbreytt og skemmtileg og gaman að sjá hversu langt mörg þeirra eru komin í tónlistinni.
Boðið var upp á þekkt lög sem og frumsamin og leikið á gítar, hljómborð, mandólín, munnhörpu og trommmur og að sjálfsögðu var sungið listilega vel. Aðsókn á kaffihúsakvöldið var mjög góð og gestir á öllum aldri.
Á efstu myndinni eru Stefanía Margeirsdóttir og Agnes Björk Andradóttir.
Gunnar Þorsteinsson og Róshildur Björnsdóttir.
Jón Ágúst Eyjólfsson.
Gígja Eyjólfsdóttir.
Óskar Kristinn og Albert.