Á starfsmannafundi fimmtudaginn 17. mars var ákveðið að fresta samskiptadegi sem skráður er á skóladagatali 6. apríl næstkomandi fram í maí.
Á samskiptadegi í janúar síðastliðnum kynntu kennarar fyrir nemendum og foreldrum matsblöð fyrir lykilhæfni. Á þeim samskiptadegi sem eftir er á skólaárinu er fyrirhugað að umsjónarkennarar skili mati á lykilhæfni og fylgi matinu eftir með samtali. Þessi samtöl munu fara fram eftir kennslu til kl. 17:00 í vikunni 9. - 13. maí. Kennarar munu þegar þar að kemur senda út tímaplan þar sem nemendur og foreldrar geta valið sér tíma á þessu tímabili.
Miðvikudagurinn 6. apríl verður því venjulegur kennsludagur hjá öllum nemendum.