Menningarviku Grindavíkur var þjófstartað í morgun með laugardagsgöngu sem hófst við íþróttamiðstöðina undir stjórn Ásdísar Sigurðardóttur. Góð þátttaka var í göngunni sem lauk í Kvennó þar sem nemendur í 4. bekk undir stjórn Hörpu Pálsdóttur danskennara stigu léttan dans við góðar undirtektir.
Þátttakendur í göngunni voru á öllum aldri sem nutu veðurblíðunnar til hins ítrasta. Farinn var hringur sem tók um klukkustund. Upphaf menningarvikunnar gefur því góð fyrirheit um skemmtilega menningarveislu í Grindavík þar sem skiptir auðvitað máli að rækta bæði líkama og sál.
Harpa og Ásdís, hressar eftir gönguna.