Gönguferđ Grindavíkurbćjar og Bláa Lónsins á annan í páskum

  • Fréttir
  • 26. mars 2016

Á annan í páskum verður boðið upp á gönguferð með leiðsögn um stórbrotið umhverfi Bláa Lónsins. Gangan hefst kl. 11.00 við bílastæði Bláa lónsins og er áætlað að hún taki um 3 klukkustundir. Hægt er að fara rúmlega hálfan hring og fá akstur til baka. Gangan er í boði Bláa Lónsins og Grindavíkurbæjar og enginn þátttökukostnaður er í gönguna.

Gengið verður m.a. um mosagróið Illahraun, framhjá Rauðhól (gígnum sem hraunið kom úr á sögulegum tíma), farið með Skipstíg, fornri þjóðleið, haldið austur með norðurhlíðum Þorbjarnarfells og inn á Baðsvelli. Þar er ætlunin m.a. að kíkja á þjófaslóðir og hin gömlu sel Grindvíkinga. Þá verður gengið um hið litskrúðuga lónssvæði að lækningalindinni og endað í heilsulind.

Þátttakendum í göngunni sem hafa hug á að fara í Bláa Lónið að göngu lokinni er vinsamlegast bent á að ganga tímanlega frá bókun á heimasíðu Bláa Lónsins.

Góður skófatnaður er æskilegur og gott er að taka með sér smá nesti.

Allir þátttakendur eru á eigin ábyrgð. Sigrún Franklín verður leiðsögumaður í göngu.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál

Fréttir / 27. mars 2024

Loftgćđi og mengun