Fimmtudagurinn er skemmtilegur í Menningarviku. Meðal annars verður bangsaskoðun fyrir yngri kynslóðina, námskeið í fatahönnun fyrir unglinga í Þrumunni og þá verður bæjarsýning á árshátíðarleikritum í kvöld. Ennfremur verður fjör í verslunarmiðstöðinni fram eftir kvöldi þar sem Heiðar snyrtir mætir á svæðið.
Fimmtudagur 17. mars
Kl. 08:00 Morgunsöngur í Hópsskóla. Hvetjum gesti og gangandi til að líta við og syngja með.
Kl. 10:00-18:00 Bókasafnið í Iðu, Ásabraut 2. Málverkasýning. Fannar Þór Bergsson leirlistamaður og eigandi Leira meira, verður með sýningu á fígúrum sem hann hefur leirað og tengjast þær allar teiknimyndum á einn eða annan hátt.
Popplistamaðurinn Hjalti Parelíus verður með sýningu á myndum sínum og verða einhverjar þeirra til sölu ef fólk hefur áhuga á að næla sér í verk eftir einn af okkar áhugaverðustu samtíma listamönnum.
Kl. 10:00-18:00 Verslunarmiðstöðin. Heilsuleikskólinn Krókur og Leikskólinn Laut sýna verk nemenda sinna.
Kl. 10:00-16:00 Verslunarmiðstöðin, 2. hæð (gamla bókasafnið). Yfirlitssýning á málverkum í eigu Grindavíkurbæjar. Á meðal málara má nefna Gunnlaug Scheving, Jón Gunnarsson, Garðar Jökulsson, Einar Lár, Sossu, Sigurð Hallmarsson, Bjarna Jónsson, Kjartan Guðjónsson, Hring Jóhannesson, Höllu Har., Sigríði Rósinkrans o.fl.
Northern Light Inn. Málverkasýning Gunnellu. Guðrún Elín Ólafsdóttir sýnir verk sín en hún sækir efni mynda sinna í
íslenska náttúru og sögu, þar sem íslenska bóndakonan skipar aðalhlutverkið.
Kl. 13:00-16:00 Myndlistasýning í Verkalýðshúsinu, Víkurbraut 46. Samsýning grindvískra málara. Anna María Reynisdóttir, Berta Grétarsdóttir, Lóa Sigurðardóttir, Sólveig Óladóttir og Þóra Loftsdóttir sýna verk sín sem þær hafa málað undanfarin misseri.
Kl. 14:00-17:00 Grindavíkurkirkja. Samvera eldri borgara kaffi, spjall og spil. Allir velkomnir,
Kl. 14:00-16:00 Handverksfélagið Greip með sýningu á útskurði og málverkum í aðstöðu sinni að Skólabraut 8-10 (gömlu slökkvistöðinni) í nýjum sal. Allir velkomnir.
Kl. 15:00-17:00 Bangsaskoðun á heilsugæslunni. Ertu 3-6 ára og átt slasaðan bangsa? Grindvíkingurinn Stefanía Ósk Margeirsdóttir og fleiri hjúkrunarfræðinemar taka á móti börnum á þessum aldri sem er velkomið að koma með veika og slasaða bangsa. Markmið Bangsaspítalans er tvíþætt; bæði stuðla að jákvæðu viðhorfi barna og trausti gagnvart heilbrigðisstarfsfólki, heilbrigðisstofnunum og því starfi sem fer fram.
Kl. 17:00-22:00 Framsóknarhúsið. Grindvíkingurinn Rúnar Þór Þórðarson með málverkasýningu en hann sýnir aðallega myndir af bátum og frá landslagi í Grindavík, hann málar bæði á striga og krossviðsplötur. Þetta er fyrsta einkasýning hans en áður hefur hann tekið þátt í samsýningum.
18:00 Bílabíó. Minja- og sögufélagið með ljósmyndasýningu á gafli fisverkunarfyrirtækisins Þróttar á horni Ægisgötu og Verbrautar, beint á móti sýningarglugga Þorbjarnar hf. Myndasýningin mun rúlla á gaflinum frá kl. 18 og fram í birtingu. Blanda og eldri og nýrri myndum.
Kl. 19:00-22:00 Námskeið í fatahönnun í félagsmiðstöðinni Þrumunni. Námskeið í fatahönnun fyrir nemendur frá 8. bekk og til 18 ára aldurs. Kennarar: Sigríður Birna Matt-híasdóttir, Studio Bercot, Paris & Ólöf Helga Pálsdóttir, FIDM, Los Angeles. Aðgangur er ókeypis. Skráning á námskeiðið hjá Jóhanni Árna í Þrumunni.
Opið til kl. 21:00 í verslunar-miðstöðinni. Lyfja, Palóma og Betra hár með ýmis tilboð í gangi. Líf og fjör og léttar veitingar. Heiðar snyrtir verður á ganginum.
Kl. 20:00 Grunnskóli Grindavíkur. Árshátíðarleikrit elsta stigs. BÆJARSÝNING. Sýndir verða söngleikirnir Prinsinn af Tuvalu eftir Pálmar Örn Guðmundsson, leikstjóri Pálmar Örn Guðmundsson og Leikhúsraunir eftir Erlu Rut Harðardóttur, leikstjóri er Kristín Gísladóttir. Þeim til aðstoðar eru kennararnir Ólöf Daðey Pétursdóttir, Halla Sveinsdóttir og Halldóra Guðbjörg Sigtryggsdóttur, Jóhann Árni Ólafsson frístundaleiðbeinandi og Harpa Pálsdóttir danskennari. Frá Tónlistarskólanum koma þau Rósalind Gísladóttir söngkennari sem æfir sönginn í Leikhúsraunum og Arnór Sigurðarson slagverkskennari sem spilaði inn allan undirleik. Um 50 nemendur koma að þessum tveimur sýningum, 25 leikarar eru í Prinsinum af Tuvalu, 14 leikarar í Leikhúsraunum og um 10 nemendur í viðbót sjá um ljós, hljóð og búningahönnun.