Árshátíð unglingastigs var haldin í gær og þótti heppnast vel. Skólinn var reglulega fallega skreyttur en allar skreytingar voru unnar af nemendum á unglingastigi. Áslaug Gyða Birgisdóttir nemandi í 10.V var kynnir skemmtunarinnar, hún bauð nemendur velkomna og gaf Margréti Fríðu Hjálmarsdóttur formanni nemendaráðs orðið. Margrét fór yfir vinnu nemendaráðs þessa vetrar, hún sagði frá félagslífi skólans í vetur og öllu því skemmtilega sem hefur verið í boði. Mikið hefur verið gert og félagslífið í skólanum verið gott.
Þá var komið að tónlistaratriði frá Tónlistarskólanum, Oliwia Ruth Mazowieska nemandi í 7.bekk spilaði lagið Secert Garden á fiðlu.
Síðan sýndu um 25 nemendur úr 7.-8. bekk leikritið Prinsinn af Tuvalu eftir Pálmar Guðmundsson kennara og var hann jafnframt leikstjóri. Þá var komið að öðru tónlistaratriði, en þeir Erling Snær Viðarsson, Kári Kham Sævarsson og Magnús Engill Valgeirsson nemendur í 7.og 8. bekk spiluðu saman á píanó. Piano-song og síðan var hlé. Eftir hlé sýndu 13 nemendur úr 9. og 10. bekk leikritið Leikhúsraunir, eftir Erlu Rut Harðardóttur í leikstjórn Kristínar Gísladóttur. Er skemmst frá að segja að sýningarnar og tónlistaratriðin heppnuðust með ágætum og fengu leikendur og aðrir aðstandendur gott klapp í leikslok.
Bakvið árshátíðina liggur mikil vinna og er gott fyrir skólann að vita hve margir eru tilbúnir að leggja á sig vinnu við að gera árshátíðina að þeirri hátíð sem hún er. Ekki síður mikilvægt innlegg í skólastarfið en námið sjálft.
Eftir árshátíðaatriði nemendanna voru kennarar með sitt árlega atriði og sýndu kennarar, margir hverjir, á sér nýjar hliðar við mikinn fögnuð nemenda.
Eftir skemmtunina um daginn var síðan dansleikur um kvöldið þar sem 10. bekkingar voru aðalnúmerið þar sem þau eru að kveðja grunnskólann sinn með þessari hátíð. DJ Björn Valur og Úlfur Úlfur hélda uppi stemmningunni á dansleiknum.
Meðfylgjandi myndir voru teknar á generalprufunni á mánudag.
Bæjarsýnigar verða í kvöld miðvikudaginn 16. mars kl. 20:00 og á morgun fimmtudaginn 17. mars kl. 20. Allir velkomnir.
Verð á bæjarsýningarnar kr. 1000 fullorðna - 500 kr. fyrir skólabörn og frítt fyrir yngri en 6 ára.