Á dögunum gerðist það að höfrung rak á land í Bótinni hér við Grindavík sem að vonum hefur vakið mikla athygli þeirra sem hafa átt leið um fjöruna. Þó var sennilega enginn jafn forvitinn og hópurinn frá leikskólanum Laut sem var í fjöruferð og rakst óvænt á þennan gest í fjörunni. Krakkarnir réðu sér vart fyrir spenningi enda ekki á hverjum degi sem slíkan gest ber að garði.
Á Facebook-síðu Lautar má sjá fleiri myndir úr ferðinni