Knattspyrnuskóli UMFG og Lýsis 1.-3. apríl

  • Knattspyrna
  • 16. mars 2016

Knattspyrnudeild UMFG og Lýsi halda knattspyrnunámskeið fyrir stráka og stelpur helgina 1. - 3. apríl.

Með stolti kynnum við til sögunnar knattspyrnuskóla knattspyrnudeildar UMFG og Lýsis 2016 fyrir 3. - 5. flokk stráka og stelpna. 

Mikil áhersla er lögð á að einstaklingurinn fái að njóta sín í knattspyrnuskólanum. Unnið er í litlum hópum og er markmiðið að hver og einn fá góða innsýn í æfingaheim þeirra sem hafa atvinnu af því að stunda knattspyrnu. Skólinn er ekki síður fyrir markmenn en útileikmenn, enda er boðið upp á sérstaka markmannsþjálfun.

Boðið verður upp á úrvals dagskrá sem inniheldur m.a:

Æfingar, fyrirlestra, mat, sund, diskó og fleira. 

Gisting í boði fyrir þátttakendur í 4. flokki og 3. flokki í Hópsskóla.

Verð fyrir þessa þrjá daga er 8000 kr.


Kennarar og fyrirlesarar:
Freyr Alexandersson A-landsliðsþjálfari kvenna - Ásgerður Stefanía Baldursdóttir fyrirliði m.fl kvk Stjörnunnar - Alfreð Jóhannsson þjálfari m.fl ÍBV - Eysteinn Húni Hauksson þjálfari í Keflavík - Arngrímur J Ingimundarson þjálfari hjá Keflavík - Óli Stefán Flóventsson þjálfari m.fl Grindavík - Ægir Viktorsson yfirþjálfari yngri flokka Grindavík - Danimir Milkanovic UEFA-pro markmannsþjálfari - Nihad Cober Hasecic þjálfari hjá Grindavík - Milan Stefán Jankovic þjálfari hjá Grindavík - Bentína Frímannsdóttir þjálfari hjá Grindavík - Klemenz Sæmundsson næringarfræðingur - Sigurvin Ingi Árnason sjúkraþjálfari og margir fleiri.

Takmarkaður fjöldi er á námskeiðið og því um að gera að skrá sig sem fyrst.

Nánari upplýsingar og skráning með nafni og kennitölu berist á netföngin aegir@umfg.is og/eða olistefan@umfg.is fyrir 24.mars


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir