Fermt verður í Grindavíkurkirkju þann 20. mars, 3. apríl og 10. apríl nk. og bjóðum við hjá körfuknattleiksd. UMFG upp á okkar árlegu skeytaþjónustu. Við verðum í aðstöðu okkar við íþróttahúsið, Austurvegi, frá kl. 11.00 - 14.00 alla dagana. Boðið verður upp á símaþjónustu. Þú hringir í síma 426-7300 og við tökum niður pöntunina.
ATH! Greiðslukortaþjónusta, ekki rukkað í hús. Verð á skeyti er 1.500,- kr. óháð orðafjölda. Hægt að panta skeyti með tölvupósti. Netfangið er karfa.skeyti@gmail.com. Þarf að gerast í síðasta lagi daginn fyrir ferminguna og greiðast inn á reikning 0143-26-1039, kt. 550591-1039.
Gleðjið fermingarbörnin með kveðju og styrkið gott málefni í leiðinni. Þú hefur val um eftirfarandi texta:
1. Hjartanlegar hamingjuóskir á fermingardaginn
2. Innilegar hamingjuóskir til þín og foreldra þinna. Bjarta framtíð
3. Bestu fermingar- og framtíðaróskir
4. Innilegar hamingjuóskir á fermingardaginn. Guð blessi þig.
Fermingarbörn í Grindavík 2016