Menningarvikunni verður þjófstartað í dag föstudaginn 11. mars en þá verður ýmislegt um að vera. Meðal annars verða málverkasýningar opnaðar og þá verður mikið um skemmtanahald í kvöld. Hér má sjá dagskrá dagsins:
Föstudagur 11. mars
Kl. 12:00 Salthúsið. Guðni Már Henningsson útvarpsmaður á Rás 2 með málverkasýningu. Sýningin ber heitið Pen in my heart og er sótt í texta Rolling Stones, It´s only rock and roll (but I like it). Hvert málverk ber nafn eins af uppáhaldslögum hans erlendum.
Northern Light Inn. Málverkasýning Gunnellu. Guðrún Elín Ólafsdóttir sýnir verk sín en hún sækir efni mynda sinna í íslenska náttúru og sögu, þar sem íslenska bóndakonan skipar aðalhlutverkið.
Kl. 13:30 Verslunarmiðstöðin. Heilsuleikskólinn Krókur, Leikskólinn Laut og nemendur í 4. bekk Grunnskóla Grindavíkur opna sýningar á verkum nemenda í göngum verslunarmiðstöðvarinnar á 1. og 2.hæð.
Krókur: Sýningin Það vex sem að er hlúð í stigagangi og á 2. hæð. Á sýningunni má sjá margskonar handverk og sameiginlegt málverk sem börnin unnu með Helgu Kristjánsdóttur bæjarlistamanni Grindavíkur. Einnig verður á sýningunni eitt samvinnuverk sem gestir og gangandi taka þátt í að skapa og hugleiða í senn á meðan sýningin stendur yfir.
Laut: „ Grindavík með okkar augum. Elstu börn leikskólans, Stjörnuhópur, fer í gönguferð um Grindavik. Hvert barn tekur eina mynd að eigin vali og nefnir sína mynd.
Grunnskólinn: Nemendur í 4. bekk sýna sjálfsmyndir, verkefni sem þau hafa unnið í samvinnu myndmenntar og textíls.
Boðið verður upp á veitingar við opnunina.
Kl. 16:00 Ásmundur Friðriksson alþingismaður opnar málverkasýningu á Bryggjunni.
Kl. 18:00 Kútmagakvöld Lionsklúbbs Grindavíkur í íþróttahúsinu. Húsið opnar kl. 18:00 með sjávarútvegssýningu. Borðhald byrjar kl. 20:00. Veislustjóri: Guðni Ágústsson. Grínari kvöldsins: Ari Eldjárn. Tónlistaratriði: The Backstabbing Beatles og fleiri. Á boðstólum verður allt það besta sem til er í sjávarfangi. Aðgöngumiðar eru seldir í Skeljungi að Seljabót 1.
Kl. 19:30 Konukvöld kvennakörfuboltans haldið í Eldborg. Sala aðgöngumiða í Palóma. Landsliðskokkarnir frá Bláa Lóninu töfra fram dýrindis máltíð. Tískusýning í litríkum sumarfatnaði frá Palómu. Happdrætti.