Guðni Már Henningsson útvarpsmaður á Rás 2 undanfarin 22 ár verður með málverkasýningu á Salthúsinu í Menningarvikunni en hann opnar reyndar fyrr eða næsta laugardag . Guðni Már leitar í tónlistina í verkum sínum enda hefur hann stjórnað fjöldamörgum tónlistarþáttum í útvarpinu. Hvert málverk ber nafn eins af uppáhaldslögum hans erlendum. Áður hefur Guðni Már sýnt á eftirtöldum stöðum:
Bókasafn Hveragerðis apríl 2014 (samsýning með Mariu Ylfu Lebedeva)
NLFÍ Hveragerði júni 2014 (samsýning með Mariu Ylfu Lebedeva)
Gallerí Hvítá ágúst 2014 (samsýning með Mariu Ylfu Lebedeva)
Langaholt Snæfellsnesi október 2014 (samsýning með Mariu Ylfu Lebedeva)
Von og Bjargir Reykjavík mars 2015.
Ljósanótt Reykjanesbæ 2015
Menningarhúsið Bjarg Dalvík október 2015
Hornið Reykjavík desember 2015
Nú er röðin komin að Grindavík. Sýningin verður opnuð 5. mars kl.16.00 og mun hljómsveitin KLASSART spila við opnunina. Opið verður svo alla Menningarvikuna á opnunartíma Salthússins.
Nafn sýningarinnar; Pen in my heart er sótt í texta Rolling Stones, It´s only rock and roll (but I like it).
Guðni Már stefnir á að sýna í öllum bæjunum á Reykjanesi en sjálfur er hann búsettur í Vogum á Vatnsleysuströnd. Grindvíkingar eru hvattir til þess að skoða þessa skemmtilegu sýningu hjá útvarpsmanninum geðþekka.