Við setningu Menningarvikunnar 12. mars kl. 17:00 í Grindavíkurkirkju verður stórmerkilegur tónlistarviðburður í Grindavík. Þá stígur Barnakór Grindavíkur frá árunum 1977-1981 á svið einum 35 árum síðar og tekur nokkur lög undir stjórn Eyjólfs Ólafssonar. Alls munu um 20 meðlimir kórsins koma fram, m.a. kemur ein gagngert frá Svíþjóð og önnur austan af fjörðum til þess að taka þátt.
Upphaf endurkomunnar má rekja til þess að í haust voru settar inn á Youtube upptökur úr sjónvarpssal frá 1978 þar sem kórinn söng nokkur lög fyrir Stundina okkar. Upptakan fór fljótlega á samfélagsmiðla og vakti mikla athygli. Þetta varð kveikjan að því að kalla kórinn saman á ný í tilefni Menningarvikunnar. Undirtektir voru frábærar og hefur kórinn æft undanfarnar vikur á ný, undir stjórn Eyjólfs. Mun kórinn flytja lög sem öll eru eftir Eyjólf.
Barnakórinn ferðaðist víða á sínum tíma, bæði innalands og utan. Kórinn fór í ævintýraferðir til Færeyja, Finnlands og Svíþjóðar og var gerður mjög góður rómur að flutningi hans. Ferðirnar vöktu mikla athygli og var talsvert fjallað um þær í fjölmiðlum, ekki síst í Finnlandi og Færeyjum.
Að sögn Eyjólfs vissi hann af upptökunum í Ríkissjónvarpinu frá 1978. Hann falaðist eftir þeim og gekk það eftir. Voru þær settar inn á Youtbue og í kjölfarið fór boltinn að rúlla.
„Svo kom þessi hugmynd að endurvekja kórinn og tóku stelpurnar svona ljómandi vel í það. Þetta hafa verið skemmtilegur endirfundir og yngdust allir upp um 30 til 40 ár við að hittast," segir Eyjólfur og hlær.
Þótt hann hafi sest í helgan stein hefur hann í nægu að snúast í tónlistinni enda ligga eftir hann fjölmörg verk.
Barnakór Grindavíkur 1978. Efri röð frá vinstri : Sólný Pálsdóttir, Ásdís Erna Ingimarsdóttir, Steinunn Jónsdóttir,Dagmar Lilja Marteinsdóttir,Guðríður Einarsdóttir, Karítas Una Daníelsdóttir, Anna María Guðmundsdóttir, Auður Katarínusardóttir,Guðrún Willards, Jóna Ágústa Hafsteinsdóttir, Ingibjörg Þórðardóttir.
Miðröð frá vinstri : Guðríður Kristinsdóttir, Laufey Viðarsdóttir, Sigríður Jóna Katarínusar-dóttir, Linda Björk Gísladóttir,Bjarný Sigmarsdóttir, Vilborg Róbertsdóttir, Svanhvít Sigurpálsdóttir, Sveinbjörg Lúðvíksdóttir, Harpa Þórðardóttir.
Neðri röð vinstri : Þórhildur Ásta Magnúsdóttir, Rósa Signý Baldursdóttir, Linda Waage, Eyjólfur Ólafsson , Fríða Egilsdóttir, Eyrún Eyjólfsdóttir, Eva Margrét Hjálmarsdóttir, Inga Runólfsdóttir.