Það var ekki leiðinlegt að koma út í fyrstu frímínútur í morgun. Dásamlegur snjór yfir öllu og ekta hnoðsnjór. Börnin létu ekki segja sér tvisvar að byrja að hnoða og brátt fylltist skólalóðin af stærðarinnar snjókörlum eins og meðfylgandi myndir sýna. Fleiri myndir birtast á Facebook-síðu skólans.