Í kvöld kl. 20:00 mun fara fram uppfærsla á netþjónum Grindavíkurbæjar og mun heimasíðan því liggja niðri eitthvað fram eftir kvöldi og jafnvel fram á nótt. Netpóstur starfsmanna verður einnig óaðgengilegur meðan á uppfærslunni stendur. Við biðjumst velvirðingar á þeim truflunum sem þetta kann að valda og biðjum gesti og starfsmenn um að sýna biðlund og þolinmæði.